21. febrúar 2012 15:20
Yfirlýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og Orkuveitu Reykjavíkur
Í gær fjallaði vefur Skessuhorns um yfirlýsingu frá Umhverfisvaktinni í Hvalfirði þess efnis að ástæða væri til að óttast að neysluvatn á Akranesi, sem kemur úr Berjadalsá, væri mengað m.a. af völdum efna frá stóriðjufyrirtækjunum á Grundartanga. Af þessu tilefni hefur Heilbrigðiseftirlit Vesturlands sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Heilbrigðiseftirlit Vesturlands vill að gefnu tilefni benda íbúum á Akranesi á það að ekkert hefur komið við reglubundnar efnamælingar af neysluvatni á Akranesi sem bendir til þess að neysluvatnið sé mengað af efnum frá stóriðjunni á Grundartanga eins og ætla mætti af grein sem skrifuð var af stjórn Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð. Það eru ekki fagleg vinnubrögð að reyna að hræða íbúa eða fyrirtæki á Akranesi með slíkum órökstuddum greinarskrifum.“
Þá hefur Orkuveita Reykjavíkur einnig sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu vegna málsins:
„Í framhaldi af dreifibréfi þar sem brigður eru bornar á eftirlit með heilnæmi neysluvatns á Akranesi vill Orkuveita Reykjavíkur, sem á og rekur vatnsveituna í bænum, benda á að reglubundið eftirlit er með neysluvatni eins og lög gera ráð fyrir. Á Akranesi er eftirlitið í höndum Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, sem sent hefur frá sér svohljóðandi yfirlýsingu“ (sbr. ofangreind yfirlýsing).
Síðan segir í yfirlýsingu Orkuveitunnar: „Í umhverfisskýrslum Orkuveitu Reykjavíkur síðasta áratuginn er að finna ítarlegar niðurstöður efnagreininga á neysluvatni á Akranesi. Skýrslurnar eru allar á vef Orkuveitunnar . Þær gefa ótvírætt til kynna mikil gæði neysluvatns á Akranesi.“
Niðurstöður efnagreininga á Akranesi árið 2011 má skoða með því að smella hér en þær verða birtar í umhverfisskýrslu OR fyrir árið 2011.