Margt áhugavert að skoða á Akranesi
Á Akranesi er margt hægt að skoða og skemmta sér við - allan ársins hring. Innan bæjarmarka eru margar náttúruperlur sem vert er að skoða og þá er sjálft Akrafjallið eitt best varðveitta leyndarmál bæjarbúa, en á fjallinu eru margar og mis-erfiðar gönguleiðir við allra hæfi.
Skemmtileg þjóðsaga glæðir Elínarhöfða skemmtilegum töfrum og gönguferð um Kalmansvík er ógleymanleg. Á Breið, yst á Akranesinu sjálfu og neðst í bænum er minnismerki um hið svokallaða Hafmeyjarslys, skammt frá Gamla vitanum. Þá er nauðsynlegt að heimsækja Safnasvæðið að Görðum, eitt skemmtilegasta safn safna á Íslandi. Þar býr m.a. hin leyndardómsfulla “Hagamús” og þar er Íslands eini kútter varðveittur.
Á Akranesi er fjölskrúðugt mannlíf og margt hægt að gera. Margs konar viðburðir setja svip á bæinn og lífga upp á tilveruna, og má þar nefna Hátíð hafsins, Írska daga og menningarhátíðina Vökudaga. Með tilkomu hins glæsilega fjölnota íþróttahúss, Akraneshallarinnar, opnuðust margvíslegir möguleikar á hvers konar íþróttamótum og segja má að um hverja helgi séu haldin mót í höllinni. Einn af hápunktum ársins er svo Skagamótið svokallaða, sem haldið er í júní ár hvert en þar koma yngstu hetjurnar saman á knattspyrnuvöllum bæjarins og etja kappi, kempur frá liðum hvaðanæva að af landinu.
Nánari upplýsingar um áhugaverða staði og skemmtilega dægradvöl á Akranesi er að finna á upplýsingavef Akraneskaupstaðar fyrir gesti og ferðamenn, www.visitakranes.is.