Akranes – viðburðaríkur staður!
Á Akranesi er alltaf eitthvað að gerast. Hver viðburðurinn rekur annan og reyndar er það svo að fáir dagar líða án þess að eitthvað sé ekki í gangi á sviði menningar, lista eða íþrótta. Á Akranesi er öflugt menningarstarf og reglulega eru haldnir tónleikar, ýmist á vegum einhvers hinna fjölmörgu kóra sem starfandi eru eða annarra tónlistarmanna.
Íþróttalífið á Akranesi er landsfrægt, ekki aðeins knattspyrnan heldur er margt fræknasta sundfólk landsins frá Akranesi. Segja má að nánast daglega sé keppt í einhverri íþrótt á Akranesi.
Á sumrin eru haldin fjöldamörg golfmót, jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna golfara og er óhætt að segja að starfsemi Golfklúbbsins Leynis sé afar öflugt og viðburðaríkt. Safnasvæðið að Görðum er vettvangur hinnar svokölluðu viðburðaveislu þar sem kennir ýmissa grasa; kleinumeistaramót, sveitarómantík, Sjávardagur, Markaðsdagur og svo mætti lengi telja.
Kynntu þér vel það sem Akranes hefur upp á að bjóða – þú finnur áreiðanlega eitthvað við þitt hæfi!