ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Hátíðarhöld og viðburðir :: Viðburðir á Safnasvæði
Prenta vefsíðu

Viðburðaveisla á Safnasvæðinu að Görðum 

Safnasvæðið að Görðum hefur á undanförnum árum skipað sér verðugan sess sem eitt helsta aðdráttarafl Akraness, enda mikil upplifun að koma þangað, jafnvel fyrir þá sem hafa annars ekkert gaman af söfnum. Á undanförnum árum hafa gömul hús sem tengjast sögu Akraness á einhvern hátt verið flutt á Safnasvæðið og gerð þar upp til minningar um liðna tíma. Í húsunum fer reglulega fram lifandi dagskrá og má þar sjá handverksfólk að störfum.  Á hverju sumri er haldin sérstök viðburðaveisla með markaðsdögum, fiskiveislum, kleinubaksturskeppni og margs konar annarri skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Aðsókn að þessum viðburðum hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin og eru þeir orðnir mikilvægur hluti af menningarstarfi Akraneskaupstaðar. Á upplýsingavef Safnasvæðisins, www.museum.is,  er að finna margvíslegan fróðleik og upplýsingar um viðburðina.

 

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008