ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Mannlíf :: Menning og listir :: Tónlistarskólinn á Akranesi
Prenta vefsíðu

Tónlistarskólinn á Akranesi

Á Akranesi er mikil og sterk tónlistarhefð og tónlistarlíf því fjölbreytt og öflugt. Þetta er ekki síst að þakka því starfi sem farið hefur fram innan veggja Tónlistarskólans á Akranesi  allt frá stofnun hans. Skólinn hóf starfsemi sína í nýjum og glæsilegum húsakynnum að Dalbraut 1 ó október árið 2007 og er þar afar vel búið að nemendum og kennurum. Margir landsþekktir tónlistarmenn stigu sín fyrstu skref á tónlistarbrautinni á Akranesi og enn í dag er mikil gerjun og gróska í tónlistinni á Skaganum. Í tónlistarskólanum er starfrækt skólahljómsveit sem getið hefur sér gott orð og innan veggja skólans starfaer sérstök fiðlusveit, "Þjóðlagasveitin" sem vakið hefur mikla athygli, en sveitin er eingöngu skipuð stúlkum sem allar leika á fiðlu.

Nánari upplýsingar um Tónlistarskólann á Akranesi má finna á vefsíðu skólans: www.toska.is.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008