ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Akraneshöllin á Jaðarsbökkum

Akraneshöllin er fjölnota íþróttahús og er hluti íþróttamiðstöðvar Akraneskaupstaðar á Jaðarsbökkum. Akraneshöllin er með knattspyrnuvöll í fullri stærð sem lagður er gervigrasi og í kringum völlinn er tartanlagður hringur þar sem hægt er að stunda frjálsar íþróttir og göngu.

Akraneshöllin skapar íþróttafólki á Akranesi einstaka aðstöðu til æfinga og keppni enda er höllin í stöðugri notkun frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld flesta daga ársins. Þar eru reglulega haldin mót hinna ýmsu flokka og koma þátttakendur oft víða að til keppni.

Akraneshöllin  er opin frá kl. 06:15 – 21:45 og frá kl. 09:00 -16:00 um helgar.  Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.

 

Íþróttamiðstöðin að Jaðarsbökkum

við Innnesveg

300 Akranesi

Sími: 433 1100

Netfang: sport hjá akranes.is.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008