ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum

Íþróttamiðstöðin á Jaðarsbökkum er aðalmiðstöð íþrótta á Akranesi. Þar er íþróttahús með stórum íþróttasal og þreksal og þar er aðalsundlaug bæjarins (Jaðarsbakkalaug).  Þar er einnig aðal knattspyrnuleikvangur bæjarins og hið glæsilega fjölnota íþróttahús, Akraneshöllin.  Íþróttabandalag Akraness, Knattspyrnufélag Akraness og Sundfélag Akraness hafa aðstöðu á Jaðarsbökkum og þar fer einnig fram íþróttakennsla Grundaskóla.

Jaðarsbakkalaug er 25 m útisundlaug en þar eru einnig 5 heitir pottar, sauna og vatnsrennibraut.

Jaðarsbakkalaug  er opin alla virka daga frá kl. 06:15 - 20:00 og frá kl. 09:00 - 16:00 um helgar.  Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.              

Þreksalur íþróttamiðstöðvar er opin frá kl. 06:15 – 21:00 og frá kl. 09:00 -16:00 um helgar.  Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.

Akraneshöllin  er opin frá kl. 06:15 – 21:45 og frá kl. 09:00 -16:00 um helgar.  Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.

 

Íþróttamiðstöðin að Jaðarsbökkum

við Innnesveg

300 Akranesi

Sími: 433 1100

Netfang: sport hjá akranes.is.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008