ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Sundlaugar

 Á Akranesi ert tvær sundlaugar, önnur að Jaðarsbökkum en hin laugin er kölluð Bjarnalaug og er að Laugabraut 6. Þar er innilaug. Báðar eru notaðar undir kennslu fyrir grunnskólana, sundæfingar Sundfélags Akraness ásamt sundskóla og ungbarnasundi.

 

Jaðarsbakkalaug

er 25 m útisundlaug en þar eru einnig 5 heitir pottar, sauna og vatnsrennibraut.

Jaðarsbakkalaug  er opin alla virka daga frá kl. 06:15 - 20:00 og frá kl. 09:00 - 17:00 um helgar.  Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.           

Sundlaugin að Jaðarsbökkum

Við Innnesveg

300 Akranesi

Sími: 433 1100

Netfang: sport hjá akranes.is

Veffang: www.akranes.is

 

Bjarnalaug

er innilaug, 12,5 m ásamt heitum potti sem staðsettur er í laugargarði utandyra. 

Bjarnalaug er notuð sem kennslulaug fyrir Brekkubæjarskóla, þar fer fram ungbarnasund og þar er sundskóli auk þess sem yngri hópar hjá Sundfélagi Akraness æfa í lauginni. Einnig stunda hinir ýmsu hópar sundleikfimi í lauginni.

Bjarnalaug er opin almenningi yfir vetrartímann (sept-maí) á laugardögum frá kl. 10.00-13.00 en þá er laugin hituð í 33 - 34°C og hentar því einkar vel fyrir ungbarnasund, enda vinsælt að fara með yngsta sundfólkið í laugina á þessum tíma.

Til gamans má geta þess að Bjarnalaug er til útleigu fyrir hin ýmsu tækifæri svo sem afmæli, bekkjarkvöld, starfsmannapartý o.fl.  

Bjarnalaug

Laugarbraut 6

300 Akranesi

Sími: 433-1130

Netfang: bl hjá akranes.is

 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008