ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu

Íþróttahúsið við Vesturgötu

Íþróttasalur íþróttahússins við Vesturgötu er notaður til kennslu við Brekkubæjarskóla og Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og til ýmis konar æfinga svo sem badminton, blak, karate, knattspyrnu, körfubolta og fimleika.  Þá er þetta keppnisstaður fyrir sömu greinar.  Þreksalur er einnig í kjallara hússins með hlaupabrettum, þrekhjólum og þrekstiga.  Einnig er þar góð aðstaða til vaxtaræktar og styrktaræfinga m.a. handlóð, stangir og lóð. Þolfimisalur er einnig í kjallara íþróttahússins og eru þar stundaðar ýmsar íþróttir svo sem aerobic, dans, pallaleikfimi, body pump, karate o.fl. 

Opnunartími íþróttahússins yfir vetrartímann er kl. 07:00-21:30 mán-fim og frá kl. 07:00-20:00 á fös.Á laugardögum er opið frá  09.00 14:00 og  á sunnudögum frá 11:00-15:00. Lokað er á sérstökum frídögum og stórhátíðardögum.

Íþróttahúsið  við Vesturgötu er lokað yfir sumarmánuðina.(júní, júlí og ágúst)

 

 Íþróttahúsið við Vesturgötu

Vesturgötu

300 Akranesi

Sími: 433-1133

Netfang: ihus hjá akranes.is

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008