Álagningu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2012, er nú lokið og verða álagningarseðlar sendir til eigenda fasteigna á næstu dögum.
Greiðsluseðlar vegna fyrsta gjalddaga eru komnir til banka. Akraneskaupstaður annast álagningu á fasteignaskatti, lóðarleigu og sorphirðugjaldi en Landsbanki Íslands annast innheimtu þeirra með sama hætti og áður.
Sérstök athygli er vakin á þeirri nýjung að álagningarseðlar fasteigna eru birtir rafrænt eigendum allra fasteigna á vefnum www.island.is
1. Velja skal efst til hægri á vefsíðunni: ,,Mínar síður“
2. Velja skal efst til hægri á vefsíðunni: ,,Mínar síður – innskrá“.
3. Til að skrá sig inn skal nota annað hvort rafræn skilríki eða veflykil ríkisskattstjóra.
4. Veljið ,,Skjölin mín“ og birtist þá vefsíða þar sem má meðal annars finna álagningarseðla fasteignagjalda 2012.
Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári, fá einnig lækkun á árinu 2012, ef þeir uppfylla skilyrði reglna um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega (sjá reglur).
Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2010, Þegar álagning vegna tekna ársins 2011, liggur fyrir næsta haust, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega.
Akraneskaupstaður framkvæmir breytingar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda.
Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi eigi lögheimili á Akranesi og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekju- og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Bæjarstjórn hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2012, verði eftirfarandi:
Hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 2.375.000, er 100% niðurfelling á fasteignaskatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 3.289.000.
Hjá hjónum/sambýlingum með tekjur allt að kr. 3.327.000, er 100% niðurfelling á fasteignaskatti. Niðurfellingin lækkar hlutfallslega með hækkandi tekjum og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.604.000.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, Reykjavík annast álagningu og innheimtu vatnsgjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000.
Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.
Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, veitir upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts, lóðarleigu og sorphirðugjalds og breytingar á þeim í síma 433 1000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið akranes@akranes.is.
Gjalddagar fasteignagjalda umfram kr. 12.000 fyrir árið 2012 eru:
15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september, 15. október.
Gjalddagi fasteignagjalda undir kr. 12.000 er 15. apríl.
Fjárreiðudeild Akraneskaupstaðar.