Stefnur og markmið
Jafnréttisstefna (Ný jafnréttisstefna er í undirbúningi og verður unnin á árinu 2012)
Jafn réttur kvenna og karla er varinn í stjórnarskrá Íslands sem og fjölmörgum mannréttindasáttmálum sem Ísland hefur undirritað og er fullgildur aðili að. Jafnréttisstefna Akraneskaupstaðar byggir á þessum gildum og tekur jafnframt mið af lögum um jafna stöðu kvenna og karla nr. 96/2000. Jafnréttisstefnan er í samræmi við ákvæði 10. gr. nefndra laga, en þar segir m.a. að sveitarfélög skuli setja sér jafnréttisáætlun til fjögurra ára, eigi síðar en ári eftir sveitarstjórnarkosningar.
Fjölskyldustefna
Á 1000. fundi bæjarstjórnar Akraness þann 11. október 2005 var samþykkt fjölskyldustefna fyrir Akraneskaupstað. Markmið fjölskyldustefnu er að skapa heildstæða umgjörð um málefni fjölskyldunnar og taka mið af þörfum hennar á öllum æviskeiðum. Stefnan fjallar um það hvernig bæjaryfirvöld munu með ákvörðunum sínum, þjónustu og aðstöðu sem boðið er upp á koma til móts við fjölskyldur á hverjum tíma. Fjölskyldustefnunni er ætlað að vera lifandi plagg sem verði í sífelldri endurskoðun þannig að fjölskyldur framtíðarinnar finni þar ákvæði sem þjóni hagsmunum þeirra, ekki síst barna og eldri borgara.
Innkaupastefna
Tilgangur innkaupastefnu Akraneskaupstaðar er að stuðla að vönduðum og hagkvæmum innkaupum Akraneskaupstaðar og tryggja gæði vöru og þjónustu. Reglum þessum er einnig ætlað að tryggja eins og kostur er góða og viðurkennda viðskiptahætti hjá Akraneskaupstað. Loks er tilgangur reglna þessara að tryggja að stjórnsýsla Akraneskaupstaðar við innkaup séu í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.
Starfsmannastefna
Bæjarstjórn Akraness samþykkti starfsmannastefnu Akraneskaupstaðar á fundi þann 13. nóvember 2001 og nær hún til allra þeirra sem ráðnir eru til starfa hjá Akraneskaupstað. Um almenn réttindi og skyldur starfsmanna kaupstaðarins fer eftir ákvæðum laga, samþykkta, kjarasamningum svo og ráðningarsamningum. Markmið Akraneskaupstaðar með starfsmannastefnunni er að leitast við að tryggja að vinnustaðir Akraneskaupstaðar séu góðir og að þar þróist fagþekking, verkkunnátta og þjónustulund í samræmi við markmið bæjarstjórnar og þarfir bæjarfélagsins.
Staðardagskrá21 - Ólafsvíkuryfirlýsingin
Yfirlýsingin varðar framlag íslenskra sveitarfélaga til sjálfbærrar þróunar. Markmiðið er m.a. sjálfbær þróun sem tryggir lífsgrundvöll og lífsgæði jafnt fyrir núverandi og komandi kynslóðir. Að athafnir í heimabyggð okkar séu innan þeirra marka sem náttúran þolir, jafnt hnattræn sem heima fyrir.