ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis, fundur nr. 11

Dags. 30.1.2012

11.fundur stjórnar HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimilis haldinn 30.janúar 2012 kl. 17,30.

 

Fundinn sátu:
Kristján Sveinsson formaður
Kjartan Kjartansson
Guðrún M.Jónsdóttir
Dóra Líndal Hjartardóttir varamaður
Hjördís Guðmundsdóttir fulltrúi starfsmanna
Helga Atladóttir hjúkrunarforstjóri
Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri

Fyrir var tekið:

 

1) Vistunarmál
Samþykkt vistun fyrir Guðborgu Elíasdóttur, Garðabraut 8, SIgrúnu Frederiksen, Skagabraut 35 og Gísla S.Sigurðsson og Erlu Guðmundsdóttir, Smáraflöt 15.

 

2) Rekstraryfirlit janúar-desember 2011
Lagt fram.

 

3) Daggjöld 2012
Lögð fram reglugerð um daggjöld fyrir hjúkrunar- dvalar- og dagvistarrými sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2012, dags. 23.janúar.

 

4) Gjaldskrá fyrir seldan mat
Samþykkt að verð fyrir heimsendan mat frá 1.febrúar verði 725 kr. frá Höfða.

 

5) Fundargerð framkvæmdanefndar v/byggingar hjúkrunarrýma, dags. 21.12.2011
Lögð fram.

 

6) Staða framkvæmda við byggingu hjúkrunarrýma
Lögð fram endurskoðuð verkáætlun frá VHE. Rætt um stöðu verksins.

 

7) Gæðahandbók
Helga kynnti gerð gæðahandbókar og samkomulag við Heilbrigðisstofnun Vesturlands um samstarf við þetta verkefni.

 

8) Önnur mál
Rætt um væntanlega breytingu á hjúkrunardeild þegar nýbygging verður tekin í notkun, viðburði sem framundan eru og samskipti við aðrar öldrunarstofnanir.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18,35

 

 



Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008