ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Stjórnskipulag :: Stofur kaupstaðarins
Prenta vefsíðu

Þann 1. janúar 2009 tók í gildi nýtt stjórnskipulag fyrir Akraneskaupstað.  Breytingarnar voru þær helstar að stofnuð voru tvö ný ráð sem starfa með bæjarráði að yfirstjórn bæjarins; fjölskylduráð og framkvæmdaráð og eiga allir kjörnir bæjarfulltrúar þannig aðild að ráðum og stjórnun bæjarins með setu í ráðunum.  Þannig er um leið eflt stefnumarkandi hlutverk kjörinna bæjarfulltrúa og gera aðkomu þeirra að stjórnun bæjarins og mótun starfsins sýnilegri, skýrari og um leið beinni en áður. Undir hverju ráði um sig hafa verið stofnaðar stofur sem annast stjórnun og framkvæmd þeirra verkefna sem ráðin marka. Bæjarstjórn samþykkti síðar breytingu á stjórnskipulaginu á fundi sínum 8. mars 2011 þar sem starf bæjarritara var m.a. tekið upp að nýju og ný störf starfsmanna- og gæðastjóra og þjónustu- og upplýsingastjóra voru stofnuð. Sjá skipurit.

  

Bæjarskrifstofa

Bæjarskrifstofa hefur að leiðarljósi að þróa og innleiða hjá Akraneskaupstað góð vinnubrögð í stjórnun fjármála, reikningshaldi og fjárhagsáætlunargerð.

Framkvæmdastofa

Framkvæmdastofa er stjórnunareining innan Akraneskaupstaðar sem sérhæfir sig í framkvæmdum, nýbyggingum, rekstri fasteigna og annarra mannvirkja fyrir hönd Akraneskaupstaðar... meira

Fjölskyldustofa

Fjölskyldustofa er stjórnunareining innan Akraneskaupstaðar sem annast starfsemi og rekstur er lýtur að málefnum fjölskyldna. Fjölskyldustofa er fjölskylduráði til ráðgjafar varðandi stefnumótandi ákvarðanir í þeim málaflokkum sem undir hana heyra og ber ábyrgð á faglegri framkvæmd ákvarðana fjölskylduráðs í takt við stefnu ráðsins... meira

 

Skipulags- og umhverfisstofa

Skipulags- og umhverfisstofa annast umsýslu skipulags- og byggingarmála, brunamála og almannavarna, hreinlætismála og umhverfismála í umboði bæjarráðs.  Jafnframt sinnir stofan tilteknum verkefnum vegna umferðar- og samgöngumála... meira 

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008