ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Stjórnsýsla :: Stofnanir :: Starfsmenn
Prenta vefsíðu
Nafn Gunnar Sigurðsson (D)
Netfang gunnars hjá olis.is
Deild Bæjarstjórn Akraness
Starfsheiti Bæjarfulltrúi, aðalmaður
Sími 4312863/4312188
Heimili
Upplýsingar

 

Gunnar er fæddur 19. maí 1946 á Akranesi. Eiginkona Gunnars er Sigríður Guðmundsdóttir innkaupastjóri hjá SHA f. 19. apríl 1958

 

Námsferill:

Bakarameistari frá Iðnskóla Akraness 1966.

 

Starfsferill:

Gunnar var bakari í Harðarbakaríi 1962 til 1966 og aftur 1968 til 1975 og bakari í eigin bakaríi á Blönduósi 1966 til 1967. Innheimtustjóri hjá Bæjarsjóði Akraness 1975 til 1982, umboðsmaður Olíuverslunar Íslands hf. frá 1. júlí 1982 til 1992 og hefur verið framkvæmdastjóri Olís á Vesturlandi frá þeim tíma.

 

Pólitískur  ferill:
Gunnar var fyrst kosinn í bæjarstjórn Akraness 1994 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og síðan endurkjörinn 1998 og 2002. Hann var formaður bæjarráðs 1994-95 og aftur 1997-1998, var forseti bæjarstjórnar  1995 og 1996.

Hann sat í stjórn SSV á Vesturlandi árin 1998-2002 og  þar af formaður stjórnar í 2 ár. Gunnar var í stjórn HAB frá 1994 og síðan í var   stjórnar Akranesveitu sem formaður  þá var hann  formaður stjórnar Andakílsárvirkjunar 1994-1998.

Hann var fyrsti formaður Upplýsinga-og kynningamiðstöðvar Vesturlands sem var stofnað 1999 og var þar til 2002.

 

Núverandi nefndarstörf:

Stjórn Grundartangahafnar og Akraneshafnar frá 2002.

Situr í Bæjarráði Akraneskaupstaðar

Landsþing samband íslenskra sveitarfélaga.

Gunnar hefur verið í stjórn Fitur frá 1999.

 

Almenn  félagsstörf:
Þá var hann formaður Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi 1964 og 1969 til 1973. Hann var formaður íþrótta og æskulýðsnefndar Akraneskaupstaðar 1970 til 1974 og í stjórn knattspyrnuráðs Akraness 1971 til 1986, að undanskildum tveimur árum, flest árin sem formaður. Gunnar hefur verið formaður Knattspyrnufélags ÍA frá 1989 að fjórum árum undanskildum.

Hann var í stjórn Knattspyrnusambands Íslands 1974 til 1989. Gunnar er einn af stofnendum hljómsveitarinnar Dúmbósextett og lék með henni í nokkur ár. Gunnar var sæmdur gull og silfurmerki og gullkrossi Íþróttasambands Íslands 1988, gullmerki Knattspyrnusambands Íslands 1989 og gullmerki ÍA 1996.

Til baka
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008