Fjölskyldan
Fjölskyldustofa Akraneskaupstaðar hefur yfirumsjón með ýmis konar félagslegri þjónustu fyrir bæjarbúa. Helstu þjónustuþættir Fjölskyldustofu eru:
Almenn félagsþjónusta:
- fjárhagsaðtoð
- stuðningsviðtöl
- tilsjón
- önnur úrræði
Húsaleigubætur:
- félagsráðgjafar veita upplýsingar um húsaleigubætur
- umsóknareyðublað í afgreiðslu bæjarskrifstofu og á heimasíðu Akraneskaupstaðar
Sérstakar húsaleigubætur:
- til að sækja um sérstakar húsaleigubætur þarf að panta tíma hjá félagsráðgjafa
- til að eiga rétt á sérstökum húsaleigubótum þarf að uppfylla ákveðin skilyrði varðandi fjárhagslega og félagslega stöðu
Barnavernd:
- móttaka barnaverndartilkynninga
- vinnsla barnaverndarmála
- stuðningsfjölskyldur
- önnur úrræði
Liðveisla:
- stuðningur við fatlaða, m.a. til að rjúfa félagslega einangrun
Félagsleg heimaþjónusta:
- Félagsleg heimaþjónusta er fyrir aldraða og öryrkja sem búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálparlaust um heimilishald og persólnulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölslylduaðstæðan, veikinda, barnsburðar eða fötlunar.
Samþætting félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar:
- Þjónusta veitt í samstarfi félagsþjónustu Akraneskaupstaðar og Heilsugæslu Akraness til þeirra sem búa í heimahúsi við skerta getu sem kann að vera samfara hækkuðum aldri, fötlun eða veikindum.
Félagsstarf aldraðra og öryrkja:
- Skipulagt félagsstarf sem felst m.a. í ýmiskonar listmunagerð og íþróttaiðkun.
Vistunarmat:
- Vistunarþörf aldraðra metin með tilliti til vistunar á dvalar- eða hjúkrunarrými.
Dagforeldrar:
- Leyfisveitingar, umsjón og eftirlit með daggæslu barna í heimahúsum
Upplýsingar um símatíma félagsráðgjafa fást á bæjarskrifstofunni í síma 433-1000 en einnig er hægt að panta tíma hjá félagsráðgjöfum.