Vinnumálastofnun Vesturlands
Vinnumálastofnun Vesturlands hóf starfsemi sína 1. október 1998. Stofnunin aðstoðar atvinnuleitendur við atvinnuleit, veitir upplýsingar og ráð um starfsval og starfsmenntun og sér til þess að atvinnuleitendur eigi kost á úrræðum sem mættu verða til þess að styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði. Einnig aðstoðar stofnunin atvinnurekendur við að útvega þeim hæft fólk til starfa.
Vinnumálastofnun Vesturlands hefur einnig milligöngu um vinnumiðlun innan Evrópska efnahagssvæðisins og auglýsir laus störf í samvinnu við EES-vinnumiðlun. Á sama hátt miðla þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar upplýsingum um atvinnutækifæri í öðrum löndum Evrópska efnahagssvæðisins.
Vinnumálastofnun annast skráningu atvinnulausra, greiðir atvinnuleysisbætur og hefur eftirlit með því að umsækjendur um atvinnuleysisbætur uppfylli skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt miðlar hún upplýsingum um laus störf og umsóknum um störf til annarra þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar og veitir upplýsingar um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá 9:00-15:00 og 09:00-12:00 föstudaga.
Vinnumálastofnun Vesturlands
Stillholti 16-18
300 Akranesi
Sími: 430 5300
faxnr. 430 5301
Vefur: www.vinnumalastofnun.is/svmvl