ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Þjónusta :: Fjölskyldan :: Málefni aldraðra :: Félagsstarf aldraðra
Prenta vefsíðu

Félagsstarf aldraðra og öryrkja að Kirkjubraut 40, sími 431-5056
Félagsstarf fyrir íbúa Akraneskaupstaðar 67 ára og eldri er rekið á vegum Akraneskaupstaðar tvo daga í viku, mánudaga og miðvikudaga frá kl.13:00-16:00.

Starfinu er ætlað að fyrirbyggja félagslega einangrun og koma til móts við áhugasvið, færni og þekkingu þátttakenda á hverjum tíma í ýmiskonar listsköpun og verkefnum sem oft eru árstíðabundin.
Umsjón með starfinu hefur Júlía Baldursdóttir.

Liðleikaæfingar fyrir 67 ára og eldri eru í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.10:00-11:00.
Umsjón með starfinu hefur Katrín Harðardóttir íþróttakennari.

Samningur er í gildi milli Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar um að íbúar Hvalfjarðarsveitar 67 ára og eldri geti sótt félagsstarfið.

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008