Sérfræðiþjónusta skóla
Við sérfræðiþjónustu eru starfandi tveir sálfræðingar og iðjuþjálfi í hlutastarfi. Auk þess er starfandi talmeinafræðingur í leikskólunum í hlutastarfi. Annast þeir greiningu, meðferð og tilvísanir til annarra greiningaraðila leik- og grunnskólanemenda. Sérfræðiþjónustan starfar einnig í nánu samstarfi við foreldra og þá aðila sem starfa með börnum og ungmennum. Foreldrar geta leitað milliliðalaust til sérfræðinga skólaþjónustu. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í grunnskólunum eða hjá starfsmönnum Fjölskyldustofu í síma 433-1000.