Vinnuskóli Akraness
Vinnuskóli Akraness er starfræktur yfir sumarmánuðina, þ.e. júní, júlí og ágúst. Öll ungmenni í 8. 9. og 10.bekk grunnskólanna á Akranesi geta sótt um starf í vinnuskólanum. Einnig er 17 ára unglingum tryggð vinna yfir sumarið, lengd vinnutímabils getur verið breytileg frá ári til árs. Vinnuskóli Akraness hefur umsjón með atvinnutengdu námi en með atvinnutengdu námi er komið til móts við nemendur sem ekki hafa átt farsæla skólagöngu. Atvinnutengt nám er samstarfsverkefni vinnuskóla, grunnskóla, foreldra og nemenda.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Einari Skúlasyni, rekstrarstjóra Vinnuskóla Akraness, í síma 863-1113, netfang einar.skulason hjá akranes.is
Sumarvinna 2011 - 17 ára unglingar f. 1994
Átaksvinna Akraneskaupstaðar og Vinnuskóla Akraness
fyrir 17 ára unglinga (f.1994)
Akraneskaupstaður og Vinnuskóli Akraness bjóða unglingum f.1994 með lögheimili á Akranesi vinnu við Vinnuskólann.
Vinnan hefst ca. 26.maí og unnið er 35 klst. á viku. Stefnt er að vinnu í 5 – 8 vikur en það gæti orðið minna, fer allt eftir fjölda umsækjenda.Haldinn verður fundur með umsækjendum áður en vinnan hefst og farið yfir stöðuna.
Umsóknarfrestur var til 16. maí sl. en aðeins þeim sem skiluðu inn umsókn fyrir tilgreindan tíma verður veitt vinna.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Skúlason, rekstrarstjóri Vinnuskólans
Sími: 431-4145 eða 863-1113
Netfang: einar.skulason@akranes.is
Fyrirhugaður vinnutími unglinga í Vinnuskóla Akraness
Það skal tekið skýrt fram að þetta er sá vinnutími sem við stefnum að og lang-líklegast að hann standist. Vinnutíminn fyrir 8., 9. og 10. bekkinga er settur fram með fyrirvara um breytingar með tilliti til fjölda umsókna og það er sá þáttur sem hugsanlega gæti orðið til þess að endurskoða þyrfti vinnutímann.
Allir unglingar f. 1995 - 1997 með lögheimili á Akranesi hafa rétt til þátttöku í Vinnuskólanum.
Starfstími Vinnuskólans fyrir 8., 9. og 10. bekkinga er á tímabilinu frá 6. júní til 12. ágúst og vinna árgangarnir á mismunandi tímabilum yfir sumarið.
Vinnuskólinn er lokaður frá miðvikudeginum 27. júlí til þriðjudagsins 2. ágústs, í kringum verlunarmannahelgina. Engin starfsemi verður í gangi á þessum tíma og vinnan hefst aftur 3. ágúst.
Stefnt er að vinnu fyrir:
8. bekkinga f. 1997, í hálfan mánuð og aðeins á morgnana frá kl. 8:30 til 12:00.
Þeim stendur til boða að velja milli tveggja tímabila sem eru eftirfarandi;
Fyrra tímabil. 6. júní til 21. júní = 10 dagar. (Frí 13.júní 2. í hvítasunnu og 17. júní)
Seinna tímabil. 25. júlí til 12. ágúst = 10 dagar. (Vinnusk. lokaður 27. júlí til 2. ágúst)
9. bekkinga f. 1996, í tæpar 5 vikur.
Fyrstu 3 vikurnar allan daginn og 2 síðustu hálfan daginn á morgnana.
Frá 6. júní til 24. júní = 13 dagar, allan daginn. (Frí 13. júní 2. í hvítasunnu og 17. júní)
Frá 27. júní til 8. júlí = 10 dagar, hálfan daginn.
10. bekkinga f. 1995, í rétt tæpar 6 vikur.
Allar 6 vikurnar allan daginn.
Frá 28. júní til 26. júlí = 21 dagur. (Vinnuskólinn lokaður frá 27. júlí til 2. ágúst)
Frá 3. ágúst til 12. ágúst = 8 dagar.
Heil vinnuvika er 35 klst. Unnið frá kl. 8:30 - 12:00 og 13:00 - 16:30 mánud. til fimmtud. og á föstudögum unnið frá 8:30 til 12:35. Kaffitímar unnir og því styttri vinnutími á föstudögum.
Rétt er að ítreka að unglingar geta eingöngu unnið á sínu tímabili og geta ekki fært vinnutíma sinn til, t.d. 15 ára unglingur kemur til með að vinna á tímabilinu frá 6. júní til 8. júlí og ef hann þarf vikufrí á þeim tíma, þá er það á ábyrgð viðkomandi og hann getur ekki unnið upp þessa viku á öðrum tíma. Þetta gildir einnig um vinnu 8. og 10. bekkinganna.
Umsóknareyðublöðum hefur verið komið til allra nemenda í 8., 9. og 10. bekkjum grunnskólanna á skólatíma í viðkomandi skóla.