Í janúar ár hvert fá allir grunnskólanemendur á Akranesi senda heim sk. ávísun á öflugt tómstundastarf, sem er í raun ígildi ávísunar. Börn sem byrja í fyrsta bekk að hausti fá ávísun í janúar sama skólaár. Ávísuninni er hægt að framvísa hjá íþrótta- og tómstundafélögum á Akranesi og hjá Tónlistarskólanum og lækkar þá kostnað við þátttöku í þeim tómstundum sem viðkomandi handhafi ávísunarinnar stundar. Upphæð ávísana er ákveðin við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni.
Sjá reglur um ávísun á öflugt tómstundastarf
Sækja umsóknareyðublað tómstundafélag / einstaklinga vegna ávísunar
Sækja umsóknareyðublað um endugreiðslu vegna tómstundastarfs
Allar nánari upplýsingar veitir þjónustuver Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða á netfanginu akranes hjá akranes.is.