ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Forsíða :: Þjónusta :: Íþróttir og tómstundir :: Íþróttamannvirki
Prenta vefsíðu

Íþróttamannvirki á Akranesi

Miðstöð íþrótta á Akranesi er á Jaðarsbökkum, þar sem finna má m.a. hina glæsilegu fjölnota Akraneshöll, sundlaug, aðalleikvang bæjarins og íþróttahús. Á Jaðarsbökkunum sjálfum eru síðan fjölmargir knattspyrnuvellir sem njóta mikilla vinsælda á sumrin. Við grunnskóla bæjarins eru sparkvellir og víða má finna útivistarsvæði, gönguleiðir og aðra möguleika til hollrar útiveru. Íþróttahúsið við Vesturgötu þjónaði lengi vel sem aðalíþróttahús bæjarins og var um tíma eitt stærsta og fullkomnasta íþróttahús landsins. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi. Langisandur er vinsæl útivistarparadís, enda má segja að gönguferð um sandinn samsvari hinum ráðlagða dagskammti af hreyfingu og margir ganga á Akrafjall sér til heilsubótar. 

Hér má finna allar helstu upplýsingar um íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar, en nánari upplýsingar veitir Hörður Kári Jóhannesson (hkj hjá akranes.is), framkvæmdastjóri íþróttamannvirkja í síma 433 1100.

                            

Sundlaugar

Íþróttahúsin á Akranesi

- Jaðarsbakkar

- Vesturgata

- Akraneshöll

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008