Ýmis gjöld
Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald, stofngjald holræsa, byggingarleyfis- og þjónustugjöld Skipulags- umhverfisstofu Akraneskaupstaðar var samþykkt af bæjarstjórn Akraneskaupstaðar þann 25. september 2007, skv. lögum um gatnagerðargjald nr. 17/1996 og nr. 153/2006, skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og 11. gr. reglugerðar um gatnagerðargjald nr. 543/1996.
Fasteignagjöld
Byggingarfulltrúi sér um viðhald álagningastofna sem notaðir eru til álagningar fasteignagjalda.
Fasteignagjöld eru lögð á lóðir þegar þær hafa verið metnar fasteignamati og fyrst á mannvirki þegar þau eru fokheld.
Brunabótamat
Fasteignamat ríkisins annast virðingu mannvirkja til brunabóta og skráir það í Landskrá fasteigna samkvæmt lögum um brunatryggingar nr. 48/1994 og reglugerð um lögboðna brunatryggingu húseigna nr. 809/2000.
Húseigendum er skylt að brunatryggja allar húseignir.
Hús í smíðum er eigendum einnig skylt að brunatryggja á smíðatímanum. Fer um vátryggingarupphæð þeirra á hverjum tíma eftir samkomulagi milli eigenda og vátryggingarfélags. Byggingarfulltrúa er ekki heimilt að gefa út fokheldisvottorð nema mannvirki séu brunatryggð.
Húseigandi ber ábyrgð á því að tilkynna Fasteignamati ríkisins eigi síðar en 4 vikum eftir að nýtt hús eða viðbygging er tekin í notkun eða eftir að byggingu þeirra lauk, eftir því sem við á.
Fasteignamati ríkisins er heimilt að reikna brunabótamat án skoðunar m.a. ef húseigendur sinna ekki skyldum sínum.
Byggingarfulltrúi hefur eftirlit með því að húseigendur sinni skyldum sínum um tilkynningu til Fasteignamats ríkisins í þessum efnum.
Skipulagsgjald
Samkvæmt 35. gr. skipulags- og byggingarlaga og reglugerð um skipulagsgjald nr. 737/1997, skal greiða skipulagsgjald, sem rennur í ríkissjóð, í eitt skipti af nýbyggingum hverrar húseignar sem nemur 0,3 % af brunabótamati. Nýbygging telst hvert nýreist hús svo og viðbyggingar við eldra hús ef virðingarverð hinnar nýju viðbyggingar nemur a.m.k. 1/5 af verði eldra húss.
Skipulagsgjald fellur í gjalddaga þegar virðingargjörð brunabótamats hefur farið fram og Fasteignamat ríkisins hefur tilkynnt hana til innheimtumanns ríkissjóða.
Hluti skipulagsgjalds rennur til viðkomandi sveitarfélags og hefur byggingarfulltrúi eftirlit með að aðilar sinni skyldum sínum í þessu efni.