ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?

Úttektir

Æskilegt er að gera tímapantanir vegna úttekta með sólahrings fyrirvara. Tímapantanir fyrir úttektir er hægt að gera í símum 433-1051, GSM 896-9941 eða í Þjónustuveri Akraneskaupstaðar í  síma 433-1000

Einnig er hægt að senda tölvupóst á runolfur.sigurdsson hjá akranes.is 

 

Við úttektir skulu allir aðal- og séruppdrættir vera áritaðir af byggingarfulltrúa og vera til staðar á byggingarstað.

 

Úttektir vegna húsbygginga eru eftirfarandi:

  • Úttektir vegna þjöppunar á malarpúða er framkvæmt af Nýsköpunarmiðstöð Íslands og þarf að panta með lágmarki viku fyrirvara.
  • Úttektir á sökklum
  • Úttekt á  lögnum í grunn, þ.m.t. Rör fyrir rafmagnsheimtaugar áður en hulið er yfir.
  • Grunni áður er plata er steypt.
  • Járnalögnum í plötur, veggi og bita.
  • Grindum, bitum og þaki áður er einangrað er og lokað.
  • Frágangi á klæðningu þaka, bæði úr timbri og öðrum efnum. Þar á meðal neglingu þakjárns og öðrum efnum með tilsvarandi frágangi.
  • Frágangur ystu klæðninga veggja. Einnig skal taka út allt festikerfi undir útveggjaklæðningar.
  • Hita og einangrun ásamt rakasperru.
  • Neyslu-, hitavatns-, hita og kælikerfum ásamt einangrun þeirra
  • Frárennslis-, regnvatns- og þerrilögnum.
  • Tækjum og búnaði vegna loftræsti og lofthitunarkerfa.
  • Úttektir á verkþáttum vegna eldvarna.
  • Þáttum er varðar aðgengi m.t.t. fatlaðra.
  • Fokheldisúttekt. Byggingarstjóra er skylt að tilkynna byggingarfulltrúa þegar bygging er fokheld. Allar teikningar skulu vera komnar inn til byggingarfulltrúa fyrir útgáfu fokheldivottorðs ásamt brunatryggingu hússins. Farið er yfir úttektaferil áður en fokheldisvottorð er gefið út.
  • Lokaúttekt. Fyrir útgáfu lokaúttektar skulu meistarar vera búnir að gefa út yfirlýsingu um að byggt hafi verið eftir samþykktum teikningum, stöðlum og reglugerðum.

 

Byggingarstjóra er skylt að vera við allar úttektir.

 

 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008