Akstur strætisvagns á Akranesi
Sími Strætisvagna Akraness: 433 8800 (Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar)
Hinn 1. janúar 2010 tóku gildi breytingar á akstri strætisvagnsins sem ekur innanbæjar á Akranesi, bæði hvað varðar akstursleið og daglegan ferðafjölda. Á meðfylgjandi yfirlitskorti er akstursleiðin sýnd ásamt tölusettum biðstöðvum og einnig fylgir með tímatafla fyrir leiðina. Til glöggvunar hefur akstursleiðinni verið skipt upp í þrjá mislita leiðahluta og tímatafla lituð til samræmis við það.
Strætisvagninn ekur 15 ferðir á dag og gengur 5 daga vikunnar (mánudaga – föstudaga) en enginn akstur er um helgar. Ekkert gjald er tekið af farþegum.
Rekstraraðili strætisvagnsins er Hópferðabílar Reynis Jóhannssonar ehf.
Tímatafla Strætó bs. Mosfellsbær - Kjalarnes - Akranes.
Allar nánari upplýsingar um gjaldskrá og leiðakerfi Strætó er að finna á upplýsingavef Strætó bs., www.straeto.is og http://akranes.is/thjonusta/umhverfi-og-samgongur/leidakerfi-straeto-bs/