Umhverfismál á Akranesi
Skipulags- og umhverfisstofa hefur umsjón með umhverfismálum Akraneskaupstaðar þ.m.t. skipulagi á sviði umhverfismála í bænum.
Framkvæmdastofa sér um framkvæmd og umsjón viðhaldsáætlanna opinna svæða, göngustíga, skógræktarsvæða, gróðursetningu og beitarlönd.
Skipulags- og umhverfisnefnd er skipuð fimm aðalmönnum og jafnmörgum til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Nefndin fer með yfirumsjón umhverfismála á Akranesi. Nefndin er bæjarstjórn einnig til ráðuneytis í umhverfismálum og tekur starfssvið nefndarinnar m.a. til náttúruverndar og varna gegn hvers kyns mengun, sbr. lög um náttúruvernd nr. 93/1996.
Nefndin fer með málefni sem snerta gróðurvernd, sbr. 19. gr. laga um landgræðslu nr. 17/1965. Enn fremur skal nefndin annast veitingu viðurkenninga til einstaklinga og fyrirtækja fyrir snyrtilegt umhverfi og eru slíkar viðurkenningar veittar árlega. Nefndin kallar til ráðuneytis fulltrúa þeirra samtaka sem láta sig umhverfismál varða þegar veittar eru viðurkenningar.
Skipulags- og umhverfisstofa Akraneskaupstaðar
Stillholt 16-18, 1. hæð
300 Akranesi
Sími: 433 1000
Fax: 433 1090
Netfang: akranes hjá akranes.is
Vefur: www.akranes.is
Nánari upplýsingar um netföng og beina síma starfsfólks Skipulags- og umhverfisstofu má finna í skrá yfir starfsfólk Akraneskaupstaðar.
Framkvæmdastofa Akraneskaupstaðar
Stillholt 16-18
300 Akranesi
Sími: 433 1000
Fax: 433 1090
Netfang: akranes hjá akranes.is
Vefur: www.akranes.is
Nánari upplýsingar um netföng og beina síma starfsfólksFramkvæmdastofu má finna í skrá yfir starfsfólk Akraneskaupstaðar.